1 Samuel 24

1Davíð fór þaðan og hafðist við uppi í fjallvígjum við Engedí. 2Og þegar Sál kom aftur úr herförinni móti Filistum, báru menn honum tíðindi og sögðu: ,,Sjá, Davíð er í Engedí-eyðimörk.`` 3Þá tók Sál þrjár þúsundir manns, einvalalið úr öllum Ísrael, og lagði af stað til að leita Davíðs og hans manna austan í Steingeitahömrum. 4Og hann kom að fjárbyrgjunum við veginn. Þar var hellir, og gekk Sál inn í hann erinda sinna. En Davíð og hans menn höfðu lagst fyrir innst í hellinum. 5Þá sögðu menn Davíðs við hann: ,,Nú er dagurinn kominn, sá er Drottinn talaði um við þig: ,Sjá, ég mun gefa óvin þinn í hendur þér, svo að þú getir við hann gjört það, er þér vel líkar.``` Og Davíð stóð upp og sneið leynilega lafið af skikkju Sáls. 6En eftir á sló samviskan Davíð, að hann hafði sniðið lafið af skikkju Sáls. 7Og hann sagði við menn sína: ,,Drottinn láti það vera fjarri mér, að ég gjöri slíkt við herra minn, Drottins smurða, að ég leggi hönd á hann, því að Drottins smurði er hann.`` 8Og Davíð átaldi menn sína harðlega og leyfði þeim ekki að ráðast á Sál. Sál stóð upp og gekk út úr hellinum og fór leiðar sinnar. 9Þá reis Davíð upp og gekk út úr hellinum og kallaði á eftir Sál: ,,Minn herra konungur!`` Þá leit Sál aftur, en Davíð hneigði andlit sitt til jarðar og laut honum. 10Og Davíð sagði við Sál: ,,Hví hlýðir þú á tal þeirra manna, sem segja: ,Sjá, Davíð situr um að vinna þér mein`? 11Sjá, nú hefir þú sjálfur séð, hversu Drottinn gaf þig í mínar hendur í dag í hellinum. Og menn eggjuðu mig á að drepa þig, en ég þyrmdi þér og hugsaði með mér: ,Ég skal eigi leggja hendur á herra minn, því að Drottins smurði er hann.` 12En líttu á, faðir, já líttu á lafið af skikkju þinni í hendi mér. Af því, að ég sneið lafið af skikkju þinni og drap þig ekki _ af því mátt þú skynja og skilja, að ég bý eigi yfir illsku og svikum og að ég hefi eigi syndgað á móti þér. En þú situr um að ráða mig af dögum. 13Drottinn dæmi milli mín og þín, og Drottinn hefni mín á þér, en hendur legg ég ekki á þig. 14Eins og gamalt máltæki segir: ,Ills er af illum von,` en hendur legg ég ekki á þig. 15Hvern eltir Ísraelskonungur? Hvern ofsækir þú? Dauðan hund, eina fló! 16Drottinn sé dómari og dæmi okkar í milli og sjái til og flytji mál mitt og reki réttar míns í hendur þér.`` 17Þegar Davíð hafði mælt þessum orðum til Sáls, þá kallaði Sál: ,,Er það ekki þín rödd, Davíð sonur minn?`` og Sál tók að gráta hástöfum. 18Og hann mælti til Davíðs: ,,Þú ert réttlátari en ég, því að þú hefir gjört mér gott, en ég hefi gjört þér illt. 19Og þú hefir í dag aukið á það góða, sem þú hefir auðsýnt mér, þar sem Drottinn seldi mig í þínar hendur, en þú drapst mig ekki. 20Því að hitti einhver óvin sinn, mun hann þá láta hann fara leiðar sinnar í friði? En Drottinn mun umbuna þér þennan dag góðu, fyrir það sem þú gjörðir mér. 21Og sjá, nú veit ég, að þú munt konungur verða og að konungdómur Ísraels mun staðfestast í þinni hendi. 22Vinn mér því eið að því við Drottin, að þú skulir ekki uppræta niðja mína eftir mig og ekki afmá nafn mitt úr ætt minni.`` [ (I Samuel 24:23) Og Davíð vann Sál eið að því. Fór Sál því næst heim til sín, en Davíð og menn hans fóru upp í fjallvígið. ]
Copyright information for Icelandic